2.september 2010 |
| Ég hef verið að uppfæra ljósmyndadálkinn Ferðalög og setja nýtt efni inn. |
21. agúst 2010 |
|
| Við Diddi og Lilja enduðum ferð okkar saman sumarið 2009 með því að fara að veiða í Hítarvatni sem svo snögg endaði með því að það gerði svona veður eins og gerist stundum undir Eyjafjöllum þegar hlutir færast úr stað sökum kröftugra vindhviða og munaði minnstu að við misstum fellihýsin okkar í svona vindhviðum, því var ákveðið að starta sumarfríinu þarna 2010 og fara að reyna að veiða silung í vatninu, Erla og Lassi voru einnig með okkur og áttum við skemmtilega helgi saman við vatnið. |
 |
11.maí 2010 |
|
Við fórum á sunnudaginn í skemmtilega veiðiferð í Faxaflóa nánar tiltekið í Garðsjó til þess að veiða Svartfugl og þorsk, ég Magga og Guðni Þór og Eyjólfur bátseigandi, veðrið var frábært, sléttur sjór frábær skemmtun í alla staði. |
 |
22. apríl 2010 |
|
Framtak tók að sér að taka á móti 90 Mw orkuveri í 40´gámum og kössum í lausavarningi fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og koma inn í hús til geymslu. það var búið að byggja húsnæði undir Varmaorkuver sem Ístak byggði fyrir OR og eru þeir að vinna í fyrsta varmaorkuvers hlutanum, Framtak er að setja búnaðinn fyrir Gufutúrbínuáfanga 5 & 6 inn í húsnæðið fyrir senni varmaorkuvers hlutann. Túrbínuhúsnæðið fyrir áfanga 5 & 6 er í byggingu af JÁ-Verktökum og verður byrjað að setja upp vélbúnaðinn í haust. |
 |
5. apríl 2010 |
|
Við hjónin áttum ydislega páskahelgi í sumarbústað í Efstadalsskógi, ég var aðeins að dytta að lögnum í húsinu, einnig fórum við inn Fljótshlíðina til þess að freista þess að koma auga á gosóróann á Fimmvörðuhálsi, það tókst og setti ég myndir af því inn á þann hluta síðunnar sem ég kalla Ferðalög hér til vinstri. |
 |
28. mars 2010 |
NASA birti gervitunglamynd af eldgosinu á Fimmvörðuhálsi, athugið píluna sem sýnir hvert Norður snýr neðst á myndinni til vinstri.
Ég rakst á fína ljósmynd af svæðinu á ensku útgáfunni hjá Veðurstofunni þar sem loftmynd sýnir gönguleiðina upp frá þórsmörk upp Kattarhrygg (sem er ekki á myndinni) Morinsheiði um Heljarkamb og upp Bröttufönn og upp úr því fer að halla niður undan fæti alveg að Skógum, þegar ég starfaði í Björgunarsveitinni Stakkur í Keflavík gengum við þetta margoft, en oftast upp frá Þórsmörk og síðan snerum við oftast til baka þegar við sáum til sjávar því farartækin okkar voru í Þórsmörk, einusinni gengum við alveg yfir að skógum, og öðru sinni fór ég í hóp í jónsmessugöngu frá Skógum 1996 eða 1997, það eru fráttir af alskonar fólki óvönu fjallaferðum sem eru að lenda í vandræðum á hálsinum, þetta er bara ekki fyrir óvant fólk að fara upp á jökla að vetri til, það er svo margt sem kemur til, það þarf að kunna að meta veðurspánna og heimfara spánna yfir á Fimmvörðuháls, ef spáin hljóðar upp á 10m/s á láglendi má mæla með 13 - 18m/s, þeð fer eftir vindátt, og fyrir hverja 100m hækkun frá sjávarmáli lækkar hitastig um tæpa gráðu, einnig kemur til fatnaður og annar búnaður og ekki sé nú minnst á líkamlegt þol.
|
Ljósm. Einar Kjartansson. |
|
|
21. mars 2010 |
|
Eldgos er hafið í Eyjafjallajökli, hægt er að sjá bjarmann á vefvöktunarmyndavél frá Búrfelli, en þeirri myndavél er beint að Heklu til þess að fylgjast með ef gýs, önnur vél horfir yfir mýrdalsjökul frá Háfelli, sjá krækju einnig er hér krækja á vef Mílu
Af Vísindavef Háskóla íslands: Gosið 1821-23 varð á um 2 km langri sprungu í toppgígnum, gosmökkurinn reis hátt fyrstu vikuna og talsvert öskufall varð, en meginmökkurinn barst til norðvesturs. Í upphafi gossins hljóp vatnsflóð úr gígnum niður í Markarfljót. |
 |
24. febrúar 2010 |
|
Nú þurfa notendur sem slá óvart inn www.íshóll.is með séríslenskum stöfum ekki að hafa áhyggjur af því lengur, því það virkar jafnvel. |
www.íshóll.is |
22. janúar 2010 |
|
Ég var heppinn að færa konunni kaffi í rúmið í morgun !!! |
 |
3. janúar 2010 |
|
Við hjónin fórum í bíltúr um Suðurnesin og ég tók nokkrar ljósmyndir mest á Vatnsleysuströnd af sumarhúsum og sennilega einhverjum heilsárshúsum. |
 |
2. janúar 2010 |
|
Leiðinda atvik með Krísuvíkurkirkju í nótt, (sjá frétt Mbl) Þessi gamla saklausa kirkja brann til kaldra kola í nótt, ekkert er rafmagnið til að kenna um brunann eins og venjulega, hvað er þá eftir? |
 |
1. janúar 2010 |
|
Ég fór á rúntinn í frostinu á nýárskvöld vegna þess að tunglið var svo fallegt, það var ekki hægt annað en að ná einhverjum góðum ljósmyndum, hér til hægri er svo afraksturinn eftir 30mín. rúnt. |
 |
|