Þrátt fyrir kreppuna er V.S. Framtak að setja upp tvær vélasamstæður á vegum Orkuveitu Reykjavíkur, Áfangi 5 og 6.. Framtak er undirverktaki fyrir Mitsubishi og Balke Düerr sem selur Mitsubishi eimsvala (kælir). Við byrjuðum á undirbúningi í september og tókum við vélasalnum 1. október og var þá hafist handa við að setja niður vélbúnaðinn, gufutúrbína, rafall, olíutankur ásamt 3 olíudælum ásamt hundruðum metra af rörum, hinum megin við túrbínuna er svo gufukælir eða eimsvali ásamt 4 vacum dælum og fjórum vatsdælum þar sem lögnin frá dælunum er 273 mm utanmál 10 tommur. Allar lagnir fyrir Balke Düerr eru ryðfríar, stál 316 L. Þess má geta að það eru tvær vélasamstæður.