Gunnólfsvíkurfjall, © Kjartan Pétur Sigurðsson www.photo.is
21.janúar 2012
 
Enn var ég að fletta gömlum ljósmyndum í tölvunni og fann þar myndir frá Fjölskylduferð á gamla vinnustaðnum á Fjallinu (Ratsjárstofnun) þar sem við fórum og skoðuðum Kárahnjúkavirkjun í uppbyggingu árið 2004. Á meðan við biðum eftir rútunni á Egilstöðum kom Víðir Gislason á flugvélinni sinni TF-LEO fljúgandi frá Akureyri og bauð hann mér upp á útsýnisflug um nágrenni Egilstaða sem ég þáði með þökkum, ég fangaði augnablikin með myndavélinni í flugferðinni og einnig við Kárahnjúkavirkjun.
TF-LEO

7. janúar 2012
 
Gleðilegt Nýtt ár öll sömul, ég var að fletta gömlum ljósmyndum í tölvunni og rakst þar á ljósmyndir frá því ég var starfsmaður hjá Ratsjárstofnun. Flugherinn á Keflavíkurflugvelli sendi stundum mannskap með þyrlu upp á fjall í erindagjörðum sem ég má ekki segja frá (Nato Secret, hvenær rennur það eiginlega út, enginn dagstimpill?) hvað um það,,,,við fengum að setjast upp í vélarnar og áttum gott spjall við flugmennina og ákvað ég að birta þessar ljósmyndir af gömlum vinnufélögum til sælla minninga, þetta var frábær tími í lífinu, að rífa okkur upp frá Keflavík og flytja til Bakkafjarðar eitt minnsta þorp landsins og vinna á hæðsta vinnustað á landinu 719m/ys. við fórum allavega á móti straumnum þá,,,góður tími.
Þyrlan



   

Eldri forsíður frá: