
Holt í Stokkseyrarhreppi.
|
20. júní 2010 |
MYNDIR |
Þá er Ættarmót 2010 yfirstaðið og þetta tókst með ágætum er mér sagt, þegar maður er í nefndinni sjálfur missir maður svo til af ættarmótinu, ættarmótsnefndin hefur lokið formlegum störfum fyrir utan lokafund í september, þar sem gögn verða sett á geisladisk til þess að auðvelda næstu nefnd starfið,við höfum þó komið starfinu af okkur yfir á næstu ættarmótsnefnd sem væntanlega heldur mót eftir 1 til 2 ár, næsta ættamótsnefnd er þannig skipuð: Hildur Skúladóttir, Sigurður Harðarson, Hákon Jens Pétursson, Finnur Hákonarson .
|
 |
6. júní 2010 |
Kæru ættingjar nú er komið að þessu, um næstu helgi 11-12 júní verður ættarmótið haldið í Félagslundi í flóa og vil ég árétta nokkur atriði er skipta máli,
-
Það hafa einungis 30 manns tilkynnt þáttöku, þið sem eigið eftir að tilkynna komu ykkar endilega tilkynnið þáttöku ykkar á frimanng(hjá)simnet.is til þess að geta metið magn súpunnar kl.11:30
-
Við þurfum að hafa þáttökugjaldið meðferðis í reiðufé (Leigugjald á Félagslundi og Matarkostnaður)
-
Við þurfum á ykkar liðsinni að halda með kaffihlaðborðið, að sem flestir komi með meðlæti á kaffiborðið sem er kl.15:30
|
25. apríl 2010 |
|
Kæru ættingjar nú er komið að ættarmóti Holtsættar sem verður haldið 11-12. júní í Félagslundi í Flóa, hjálögð er dagskráin sem gott er að prenta út og hafa til hliðsjónar.
Við erum í vandræðum með að finna öll netföng í fjölskyldunni, gott væri að þið sendið netföng frá ykkar ættlegg til okkar í ættarmótsnefnd á netfangið frimanng(hjá)simnet.is |
|
15. febrúar 2010 |
|
Ættarmótsnefndin hefur komð saman og ákveðið að hafa ættarmót í sumar nánar tiltekið laugardaginn 12. júní 2010.
Verður samkoman haldin í Félagslundi í Flóa og mun dagskráin vera tilkynnt nánar þegar nær dregur. |
ÆTTARMÓT 2010 |
13. ágúst 2008 |
|
Jón Sigurgrímsson var alla tíð mikill ljósmyndari og liggja eftir hann þúsundir ljósmynda. Á ættarmótinu um síðustu helgi var ljósmyndasýning sem var varpað með myndvarpa upp á vegg .
Einnig er áhugaverð ljósmyndasýning eftir hann á bryggjunni á Stokkseyri í tengslum við fjölskyldudaga sem var haldinn í júlí á Stokkseyri um verslunarmannahelgina. |
|
12.ágúst 2008 |
|
Á laugardagsmorgun og á sunnudagsmorguninn var frjáls mæting hjá mótsgestum í mjaltir, hér til hægri eru ljósmyndir frá því, það var þokkaleg mæting. |
|
11.ágúst 2008 |
|
Ættarmót var haldið í Holti um helgina og tókst það mjög vel og eiga nefndarmenn hrós skilið fyrir undirbúninginn og hvernig til tókst, það verður erfitt að toppa þetta fyrir verðandi ættarmótsnefnd. |
|
| Ættarmót var haldið í Þrastarskógi fyrir mörgum árum, ég á ljósmyndir frá þessu ættarmóti sem ég hef skannað inn, en gæðin eru ekki þau sömu og á digital myndavél. |
|
|