www.Ísholl.is

Nafnið á vefsíðunni er tilvitnun í nafn á eyðibýli efst í Bárðardal, Íshóll við Íshólsvatn, hún amma mín í föðurlegg var þaðan, hún Unnur Jónsdóttir.
Þessi síða er svona hugarfóstur mitt og tómstundagaman, ég smíðaði hana frá grunni og tilgangur hennar er sá að halda utan um ljósmyndir er tengjast starfi mínu, halda utan um fjölskyldu mína, ættingja í báða leggi og þar er ættartal sem er stöðugt í uppfærslu þegar ættingjar mínir senda mér upplýsingar um nýja meðlimi. Einnig birti ég hér ljósmyndir sem hefur alltaf verið ástríða hjá mér að taka, ég notaði myndavél frá Fujifilm FinePix S602 Zoom, í dag nota Canon EOS 40D, stundum nota ég símann minn í svona vinnutengdar ljósmyndir, þess má geta að allar bakgrunnsmyndir eru myndir frá mér eins og þessi bakgrunnur hér að aftan.
Ljósmyndir er hægt að skoða undir Ferðalög og einnig undir Ljósmyndadellan , Atvinnutengdar myndir eru undir Starfið

Frímann Grímsson