31. desember 2010
 

Þrátt fyrir kreppuna er Framtak að setja upp tvær vélasamstæður á vegum Orkuveitu Reykjavíkur, Áfangi 5 og 6.. Framtak er undirverktaki fyrir Mitsubishi og Balke Düerr sem selur Mitsubishi eimsvala (kælir). Við byrjuðum á undirbúningi í september og tókum við vélasalnum 1. október og var þá hafist handa við að setja niður vélbúnaðinn, gufutúrbína, rafall, olíutankur ásamt 3 olíudælum ásamt hundruðum metra af rörum, hinum megin við túrbínuna er svo gufukælir eða eimsvali ásamt 4 vacum dælum og fjórum vatsdælum þar sem lögnin frá dælunum er 273 mm utanmál 10 tommur. Allar lagnir fyrir Balke Düerr eru ryðfríar, stál 316 L. Þess má geta að það eru tvær vélasamstæður.

Mitsubishi
  

28. september 2010
( GSM símamyndir )
Í ágúst mánuði var HS Orka að taka upp 35 Mw túrbínu í orkuveri 5 sem er vél 11 að öllum líkindum, þá hafði þessi vél þjónustað fyrirtækið í 10 ár, var skipt út rótor og vendiskóflum í keisingum, Framtak var fengið til þess að hjálpa til við þessa aðgerð.

20. júní 2010
 
14. júní (til 24/6) voru allar gufutúrbínurnar í Hellisheiðarvirkjun stöðvaðar til þess að vinna við uppsafnað viðhald og vél 1. tekin upp af starfsmönnum OR. Framtak var með tvö verkefni, í fyrsta lagi að sjóða eimsvala 3. og 4. að innan og að bæta við kúlulokum og breyta lögnum eftir kröfum OR og Verkfræðistofunnar Mannvit. ehf í kælivatnslögnum, gaslögnum, og stýrilofts lögnum.

22. apríl 2010
 
Framtak tók að sér að taka á móti 90 Mw orkuveri í 40´gámum og kössum í lausavarningi fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og koma inn í hús til geymslu. það var búið að byggja húsnæði undir Varmaorkuver sem Ístak byggði fyrir OR og eru þeir að vinna í fyrsta varmaorkuvers hlutanum, Framtak er að setja búnaðinn fyrir Gufutúrbínuáfanga 5 & 6 inn í húsnæðið fyrir senni varmaorkuvers hlutann. Túrbínuhúsnæðið fyrir áfanga 5 & 6 er í byggingu af JÁ-Verktökum og verður byrjað að setja upp vélbúnaðinn í haust.

Eitt stimpilgat tekið í Goðafoss í janúar 2010.
Símaljósmynd
Þessar myndir eru teknar á símann minn og þess vegna ekki í góðum gæðum. Vélin um borð í Goðafossi er af gerðinni MAN B&W 7S60MC 7 cyl. og er 21490 hö við 105 sn/min. þess má geta að við erum að vinna við efsta hlutann á vélinni, en myndin er fengin að láni frá www.ship-technology.com og sýnir vélina alla sem er á mörgum hæðum. Vélavinna

Spilupptekt í 2. Rússatogurum í nóv/des. 2009.
Símaljósmynd
Framtak hefur verið að vina um borð í Rússneskum togurum í Hafnarfjarðahöfn en Icelandic Fish Products hefur fjármagnað þessar viðgerðir. Farið hefur verið í leguskipti í 4 gírkössum á togspilum, öll vírakefli um borð ásamt togrúllum og einu kapalspili
Vélavinna

Vélarupptekt í Júpiter um miðjan október 2009.
Símavideo

Aðalvélin var tekin upp í Júpiter og langar mér til þess að sýna hvernig hiti og kuldi er notaður í vélvirkjun til þess að setja saman hluti sem eru renndir saman passandi uppá hundraðasta partinn út millimeter. Ef setja á legu í gat sem er eðlilega stíf, er hluturinn hitaður upp í 100°C og legan kæld til þess að minnka ummálið, við hitun þenjast málmar út en minnka við kælingu.


Nýsmíði í sept/okt. 2009. Vírastýri fyrir Flottroll
 
Beiðni kom frá Framtak Blossa að hanna og smíða Vírastýri fyrir togara í Argentínu í samstarfi við Naust Marine, hér til hægri má sjá afurðina á lokastigi smíðinnar.
Vírastýri

Ölgerðin mars 2009
Símaljósmynd
Framtak tók að sér að flytja Sól verksmiðjuna og setja hana upp í sama húsnæði og Ölgerðin er í núna (Egill Skallagrímsson). Ég tók þessar myndir á símann minn þannig að þær eru bara svona :)
Ljósmyndir

Cayman Eyjar í Karabíska Hafinu 2008

Ég var sendur til Cayman Eyja til þess að fylgja eftir uppsetningu á Brennslustöð á stærstu eyjunni af þremur Grand Cayman, höfuðborgin heitir George Town og það búa sirka 40 þús manns á eyjunni, þetta er skattaparadís og Bresk nýlenda, þar sem menn keyra á öfugum vegarhelmingi. Rafmagn er framleitt með díselvélum um 80 Mw og ferskvatn einnig framleitt með vélbúnaði úr sjó, þeir lifa á ferðamannaiðnaði og þjónustu og hafa ekki þegið fé frá bresku krúnunni í 8 ár, annars er þetta skemmtilega samsett þjóðfélag þar sem fólk úr öllum áttum er að vinna, en þetta var of heitt fyrir minn smekk ca 75% til 90% raki og 31° til 40° C hiti, rennandi blautur af svita allan daginn. Ég sá eyjuna og lífið á annan hátt heldur en hinn venjulegi ferðamaður þar sem ég átti í beinum samskiptum við innlenda menn og og vann þarna í tvær vikur. Eyjaskeggjar eru svolítið á eftir í mörgum málum t.d. sorpflokkunarmálum, þeir eru búnir að búa til risastórt fjall úr sorpúrgangi sem er sennilega hæðsti punktur á eyjunni og svo pressa þeir bíla saman og stafla upp en virðast ekkert gera til þess að koma þessu í verð, járn kostar peninga, og það kostar líka peninga að losna við sorp, en það er hægt að búa til rafmagn með því að brenna sorp og hafa varmaendurvinnslukerfi og katla og síðan gufutúrbínu! þetta er eldsneyti! hér fyrir neðan hef ég flokkað ljósmyndir af þessari ferð til skoðunar.
Eyjan Sorpeyðingarstöðin Ruslið

Hellisheiðarvirkjun áfangi 3 og 4 árið 2008.

Véla og Skipaþjónustan Framtak er með samning við Mitsubishi um að setja niður tvær 45MW Gufuaflstúrbínur ásamt eimsvölum frá Balke Düerr við vélarnar ásamt tilheyrandi vélbúnaði.

Byrjað var að setja upp vinnubúðir og skrifstofubúðir handa Starfsfólki Mitsubishi og Framtaks, en vetur konungur fór aftur til fortíðar og sýndi sig eins og hann var hér áður fyrr með snjó og vetrarveðrum, maður á þessu ekki að venjast.

Gott er að ýta á F11 þegar myndasýning er í gangi og fara svo til baka með F11.

______________________________________________________________________________________

Hellisheiðarvirkjun áfangi 11. árið 2007.

Framtak var með annað svipað verkefni við niðursetningu á tveimur gufuaflstúrbínum uppi á Hellisheiði fyrir Orkuveitu Reykjavíkur við áfánga eitt og tvö, var það lagnavinna innandyra og niðursetning á vélbúnaði og Eimsvala (Condens) fráBalke Düerr, þessi tvö verkefni á Reykjanesi og Hellisheiði voru unnin á sama tíma árið 2006 þó svo að Reykjanesvirkjun hafi byrjað fyrr, eða árið 2005.
Svo var það að þýska fyrirtækið Balke Durr sem samdi við Framtak um að setja niður Eimsvalann við Toshiba túrbínu við áfanga 11. hér koma nokkrar ljósmyndir af framgangi verksins árið 2007.
Hér má sjá ljósmyndir af framgangi verksins við lágþrýstvél 11. á Hellisheiði.

Gott er að ýta á F11 þegar myndasýning er í gangi og fara svo til baka með F11

_________________________________________________________________________________________________

Hér fyrir neðan eru ljósmyndaseríur af framgangi verksins á Reykjanesi frá því sumarið 2005
Gott er að ýta á F11 þegar myndasýning er í gangi og fara svo til baka með F11.

1. Vinnubúðirnar

3.Stofnæðar

18. Sjótökusvæði


_________________________________________________________________________________________________

Menntun og starf.

CV/ Starfsreynsla.     CV, in English       Réttindi & Námskeið.

Er Vélvirki að mennt frá Iðnskólanum í Hafnarfirði, einnig er ég með burtfararpróf í Pípulögnum frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti.
Hóf starf hjá Skipasmíðastöðinni í Njarðvík eftir nám ´79, fór til Hitaveitu Suðurnesja ´83 og vann í Varmaorkuverinu í Svartsengi, þar til ég stofna mitt eigið fyrirtæki ´87 og vann við það til ársins ´99, byrja hjá Ratsjárstofnun í nóv. 2000 vann hjá stofnuninni í fimm ár eða þar til ég byrjaði hjá Véla og Skipaþjónustunni Framtak í feb. 2005.
Framtak var með stórverk fyrir Hitaveitu Suðurnesja á Reykjanesi þar sem byggt var 100 Mw raforkuver, byggingafyrirtækið EYKT ehf sá um byggingu á mannvirkjum og Framtak um uppsetningu á vélbúnaði og stofnlögnum og safnæðum ásamt rörlagnavinnu í orkuverinu og stálsmíði alla, síðan komu ýmis fyrirtæki að þessu verki t.d. voru Jarðvélar ehf með jarðvinnu á staðnum, Stjörnublikk sá um einangrun og klæðningu á lögnum og smíði og uppsetningu loftræstikerfa í orkuverinu, Framtak sá um kælisjólögn sem er úr 1000 mm trefjaplasti frá sjótökuholum að orkuveri, rafverktakar voru Fagtækni ehf og Rafal ehf.
Lauk starfi hjá V.S. Framtak um mánaðarmótin maí/júní 2008 og byrjaði að vinna hjá V.Á. Verktökum í Sandgerði 2. júní 2008. Sagði skilið við það fyrirtæki og byrjaði hjá Evrópskri Umhverfistækni ehf. þann 15. ágúst 2008.
Enerwaste International Corporation sérhæfir sig í framleiðslu á Sorpbrennslustöðvum á alþjóðamarkaði, þannig að útrásin er algjör, en framleiðsla á stöðvum fyrir inannlandsmarkað er takmörkuð, aðeins ein stöð er í gangi frá fyrirtækinu og er hún á Húsavík, afkastageta þeirrar stöðvar er 20 Tonn á sólarhring miðað við hönnunarforsendur, fyrirtækið er um þessar mundir (2008-09) að setja upp stöð í Dumfries í Skotlandi sem afkastar 90 T/sólarh. og verður þar varmaendurvinnslukerfi ásamt gufutúrbínu. Einnig setti fyrirtækið upp eina litla (4 T/sólarh.) stöð á Cayman Eyjum í karabíska hafinu sem er rétt austan við Kúbu, þessi stöð var smíðuð í Bandaríkjunum af Steve Webber sem er undirverktaki hjá Enerwaste International. Ég hef nú látið af störfum hjá fyrirtækinu þar sem það varð gjaldþrota.. Tímabundið fór ég að vinna hjá Drifás ehf í Sandgerði sem er verktaki hjá Síldarvinnslunni í Helguvík. Eftir þetta ævintýri fór ég aftur að vinna fyrir V.S. Framtak að Vesturhrauni 1. Hafnarfirði.